Stutt stopp
Pit Stop
2026 / 28.08. - 04.09.
Exhibition in the Polish grocery store Euromarket, as a part of Hamraborg Festival, Kópavogur, Iceland.
Við stoppum stutt og handleikum umbúðir úr pappír, plasti, málmi og gleri. Hlutirnir snertast, mynda keðjur eða pör. Síendurtekin form leiða okkur áfram eins og vegstikur. Ólík gildi eru sorteruð eftir lit, hæð og lögun og komið vandlega fyrir inn í skífu- eða súluritum. Dagatöl skipta tímanum upp í rúður eins og afmælisköku sem er deilt jafnt á milli gesta.
Við stoppum stutt, verðum að punkti og horfum á línuna teiknast í loftið, yfir til næsta punkts. Smám saman birtist myndin.
-